Heimsóknatakmarkanir og grímunotkun
Ekki koma í heimsókn eða inn á stofnunina ef eitthvað af þessu gildir:
- Þú ert í sóttkví eða einangrun
- Þú hefur verið erlendis síðustu 7 daga
- minna en 7 dagar eru síðan þú laukst einangrun vegna smits
- þú ert með einkenni sem minnsti grunur er um að geti verið Covid-19, svo sem hósti, hálssærindi, mæði, niðurgangur, uppköst, hiti, höfuðverkur, kviðverkir, beinverkir eða þreyta.
Sjúkradeild á Ísafirði
Mest mega tveir gestir koma í einu, þó undantekningar séu veittar af hjúkrunarfræðingi á vakt.
Heimsóknatími er frá 15:00–16:30 og frá 18:30–20:00.
Grímuskylda er meðal gesta á deildinni.
Hjúkrunarheimili
Mælst er til þess að heimsóknargestir séu eingöngu í heimsókn inni á herbergjum ástvina sinna.
Grímuskylda er fyrir gesti.
Heilsugæsla og önnur þjónusta
Grímuskylda er í heilsugæslu og annarsstaðar þar sem ekki er hægt að viðhafa eins meters fjarlægð.
Bólusetningar
Bólusetningar fyrir Covid-19 fara fram á Ísafirði og Patreksfirði. Boðanir eru sendar út með SMS-skeytum.

Frekari upplýsingar
Vefspjallið niðri í hægra horninu á Covid.is er með svörin á reiðum höndum við almennum spurningum.
Hringdu í okkur í 450 4500, sendu tölvupóst eða hafðu samband við okkur á Heilsuveru til að fá upplýsingar um bólusetningu miðað við þínar forsendur.
Fréttir og tilkynningar sem tengjast Covid-19
- Smit hjá starfsmanni Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða á PatreksfirðiCovid-smit hefur verið staðfest hjá starfsmanni stofnunarinnar á Patreksfirði. Búið er að skima alla starfsmenn og alla skjólstæðinga á legudeildinni. Í ljósi þess að nú hefur verið staðfest smit hjá […]
- Hópsmitið afstaðið að mestuLífið er aftur að komast í samt lag á Patreksfirði og nærsveitum eftir hópsmitið sem kom upp í síðustu viku. Síðustu daga hafa sýnatökur í lok sóttkvíar sýnt nokkur ný […]
- Covid-próf á Vestfjörðum bókast nú á HeilsuveruFor English version, click here. Nýtt í september: öll próf eru nú bókuð á netinu, nema fyrir fólk á leið til útlanda. Einkennapróf og hraðpróf Ef þú hefur flensulík einkenni getur […]
- Bólusetning barna 12-15 ára gegn COVID – 19 á norðanverðum VestfjörðumBólusetning barna 12-15 ára gegn COVID – 19 á norðanverðum Vestfjörðum 24. og 31. ágúst verður boðið upp á bólusetningar fyrir börn á aldrinum 12 – 15 ára á norðanverðum […]
- Covid-testing in the WestfjordsFyrir upplýsingar á íslensku, smelltu hér. This supersedes earlier information. Updated 8th July. Symptomatic tests If you have symptoms that could be Covid (flu-like symptoms), call us [(+354) 450 4500] […]
- Covid-próf á VestfjörðumFor English version, click here. Neðangreindar upplýsingar koma í stað þeirra eldri. Einkennapróf Ef þú hefur flensulík einkenni sem gæti verið Covid, hringdu í okkur til að bóka tíma í […]