Starfseining: Heilsugæsla Suðursv., 450 Patreksfjörður

Umsóknarfrestur: frá 29.10.2021 til 09.12.2021.

Starfshlutfall: 70-100%


Við óskum eftir að ráða verkefnastjóra hjúkrunar í 70 til 100% starf á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Patreksfirði. Starfið hentar reynslumiklum hjúkrunarfræðingum og er einnig kjörið fyrir nýútskrifaða sem viljast öðlast fjölbreytta reynslu í alhliða hjúkrun. 

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 250 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum. Þar af eru rúmlega 40 starfsmenn á Patreksfirði á heilsugæslu, legudeild, endurhæfingu og rekstrardeild. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum. 

Verkefni

Störf verkefnastjóra hjúkrunar eru fjölbreytt og vinna þeir með breiðum skjólstæðingahópi. Verkefnastjóri mun hafa umsjón með heimahjúkrun og heilsueflandi móttökum. Á stöðinni eru þrír hjúkrunarfræðingar sem vinna saman í öflugu teymi á heilsugæslu og legudeild. 

Verkefnastjóri hjúkrunar sinnir einnig bakvöktum. 

Hæfnikröfur

  • Fullgilt hjúkrunarpróf og íslenskt starfsleyfi
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sveigjanleiki og sjálfstæði í starfi
  • Faglegur metnaður
  • Ökuréttindi eru nauðsynleg

Laun

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Tengiliður/ir

Sækja um

Smelltu hér til að sækja um starfið