Starfseining: Bráðadeild, 400 Ísafjörður

Umsóknarfrestur: frá 02.12.2021 til 13.12.2021.

Starfshlutfall: -80%


Heilbrigðisstofnun Vestfjarða leitar að jákvæðum og sjálfstæðum einstakling í tímabundið starf ritara á Bráða- og legudeild á Ísafirði. Um er að ræða  80% starf til 1. apríl 2023.

Á deildinni starfar öflugur hópur um 25 hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða og er þar góður starfsandi sem einkennist af samheldni, vináttu, metnaði og gleði.

Verkefni

Helstu verkefni ritara eru:

  • Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum deildarinnar samkvæmt starfslýsingu
  • Almenn símsvörun
  • Yfirsýn/umsjón með inn- og útskrift sjúklinga í samvinnu við starfsfólk deildarinnar
  • Yfirfer legukerfi daglega og leiðréttir eftir þörfum
  • Pantar rannsóknir skv. fyrirmælum og sér um að panta vörur fyrir deildina.

 

Hæfnikröfur

  • Heilbrigðismenntun eða önnur almenn menntun sem nýtist í starfi
  • Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði
  • Reynsla af ritarastörfum og önnur reynsla sem nýtist í starfi er kostur
  • Jákvæðni og rík þjónustulund
  • Samviskusemi og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði

Laun

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Tengiliður/ir

Sækja um

Smelltu hér til að sækja um starfið