Nýtt útlit Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða
Nýtt merki og útlit stofnunarinnar er tekið í notkun um miðjan desember. Nýir litir, dökkgrænn og kremaður, tákna mannlega hlýju og virðingu. Merkið sýnir H, V, mögulega S, táknar umhyggju, mannlega nærveru, samfélag, firði og mýkt. Með merkinu er aflagt orðmerki, rautt á hvítum fleti, sem gert var til tímabundinnar notkunar fyrir um áratug síðan.