Hjúkrunarheimilið Berg
Hjúkrunarheimilið Berg var opnað 6. desember 2015 í hinu svokallaða Hvíta húsi. Á efri hæðum eru íbúðir fyrir eldra fólk og safnaðarheimili. Í kjallara er endurhæfingarþjónusta.
Tíu rými eru á Bergi. Umsóknir um pláss fara í gegnum Færni- og heilsumatsnefnd Vestfjarða. Deildarstjóri er Auður Helga Ólafsdóttir, sem einnig er deildarstjóri á Eyri, en aðstoðardeildarstjóri er Svala Einarsdóttir.

Heilsugæslusel
Heilsugæslusel er að Höfðastíg 15.
Viðræður hafa staðið um talsvert skeið um færslu á selinu í heppilegra húsnæði og unnið er að lausn á málinu í samstarfi við Bolungarvíkurkaupstað.
Heimahjúkrun
Heimahjúkrun er sinnt í Bolungarvík frá heimahjúkrunardeildinni á Ísafirði.