Heimsóknatakmarkanir og grímunotkun

Ekki koma í heimsókn eða inn á stofnunina ef eitthvað af þessu gildir:

  • Þú ert í sóttkví eða einangrun
  • Þú hefur verið erlendis síðustu 7 daga
  • minna en 7 dagar eru síðan þú laukst einangrun vegna smits
  • þú ert með einkenni sem minnsti grunur er um að geti verið Covid-19, svo sem hósti, hálssærindi, mæði, niðurgangur, uppköst, hiti, höfuðverkur, kviðverkir, beinverkir eða þreyta.

Sjúkradeild á Ísafirði

Mest mega tveir gestir koma í einu, þó undantekningar séu veittar af hjúkrunarfræðingi á vakt.

Heimsóknatími er frá 15:00–16:30 og frá 18:30–20:00.

Grímuskylda er meðal gesta á deildinni.

Hjúkrunarheimili

Mælst er til þess að heimsóknargestir séu eingöngu í heimsókn inni á herbergjum ástvina sinna.

Grímuskylda er fyrir gesti.

Heilsugæsla og önnur þjónusta

Grímuskylda er í heilsugæslu og annarsstaðar þar sem ekki er hægt að viðhafa eins meters fjarlægð.

Bólusetningar

Bólusetningar fyrir Covid-19 fara fram á Ísafirði og Patreksfirði. Boðanir eru sendar út með SMS-skeytum.

Önnur bólusetning fyrir Covid-19.

Frekari upplýsingar

Vefspjallið niðri í hægra horninu á Covid.is er með svörin á reiðum höndum við almennum spurningum.

Vefspjall á Covid.is

Hringdu í okkur í 450 4500, sendu tölvupóst eða hafðu samband við okkur á Heilsuveru til að fá upplýsingar um bólusetningu miðað við þínar forsendur.

Fréttir og tilkynningar sem tengjast Covid-19

  • Smit hjá starfsmanni Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða á Patreksfirði
    Covid-smit hefur verið staðfest hjá starfsmanni stofnunarinnar á Patreksfirði. Búið er að skima alla starfsmenn og alla skjólstæðinga á legudeildinni.  Í ljósi þess að nú hefur verið staðfest smit hjá […]
  • Hópsmitið afstaðið að mestu
    Lífið er aftur að komast í samt lag á Patreksfirði og nærsveitum eftir hópsmitið sem kom upp í síðustu viku. Síðustu daga hafa sýnatökur í lok sóttkvíar sýnt nokkur ný […]
  • Covid-próf á Vestfjörðum bókast nú á Heilsuveru
    For English version, click here. Nýtt í september: öll próf eru nú bókuð á netinu, nema fyrir fólk á leið til útlanda. Einkennapróf og hraðpróf Ef þú hefur flensulík einkenni getur […]
  • Bólusetning barna 12-15 ára gegn COVID – 19 á norðanverðum Vestfjörðum
    Bólusetning barna 12-15 ára gegn COVID – 19 á norðanverðum Vestfjörðum  24. og 31. ágúst verður boðið upp á bólusetningar fyrir börn á aldrinum 12 – 15 ára á norðanverðum […]
  • Covid-testing in the Westfjords
    Fyrir upplýsingar á íslensku, smelltu hér.  This supersedes earlier information. Updated 8th July. Symptomatic tests If you have symptoms that could be Covid (flu-like symptoms), call us [(+354) 450 4500] […]
  • Covid-próf á Vestfjörðum
    For English version, click here. Neðangreindar upplýsingar koma í stað þeirra eldri. Einkennapróf Ef þú hefur flensulík einkenni sem gæti verið Covid, hringdu í okkur til að bóka tíma í […]